SKÁLDSAGA Á ensku

Mr. Standfast

Mr. Standfast er þriðja skáldsagan Buchans þar sem ævintýramaðurinn Richard Hannay er í aðalhlutverki, en áður komu sögunar The Thirty-Nine Steps og Greenmantle. Kom hún fyrst út árið 1919 og gerist á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Titillinn vísar í rit John Bunyans Pilgrim's Progress en auk þess kemur sú saga víða við í bókinni sjálfri. Hannay notar hana t.a.m. sem lykilbók til að ráða dulmál. Í sögunni er Hannay kallaður heim frá vesturvígstöðunum til að taka þátt í leynilegri ráðagerð um að hafa uppi á stórhættulegum njósnara Þjóðverja sem er á Bretlandi. Eitt leiðir af öðru og leikurinn berst alla leið í svissnesku Alpana. En það er um að gera að lesa bókina og sjá hvernig þetta fer allt saman. Þetta er spennandi saga sem allt áhugafólk um njósnasögur ætti að hafa gaman að.


HÖFUNDUR:
John Buchan
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 468

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :